Bloggsíða 7.flokks kvenna

Upplýsingasíða 7.flokks kvenna

24.01.2012 10:27:08 / irstelpur7

Æfing fellur niður sunnudaginn 29. janúar

Hæhæ Vegna Þorrablóts ÍR ( sem flestir ef ekki allir foreldrar ætla að mæta á :) ) þá fellur niður æfingin á sunnudaginn í Seljaskóla. kveðja, Bjarni

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2011 13:29:49 / irstelpur7

Þorrablót ÍR

Þorrablót ÍR Sælir ÍR ingar! Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar. Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna. Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting. Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR, hjá Braga í Leiksport Hólagarði, í Fiskbúð Hólmgeirs í Mjódd og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku. Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-) Athugið að það er 18 ára aldurstakmark. http://www.ir.is/UmIR/Thorrafagnadur/

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2011 18:28:56 / irstelpur7

Jólafrí

Hæhæ

Núna er komið jólafrí hjá okkur.
Það er búið að vera svaka gaman með ykkur fyrir áramót.
Ég óska ykkur ( stelpur og foreldrar ) gleðilegra jóla og vona að þið hafið það rosa gott yfir hátíðina.

jólakveðja,
Bjarni


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2011 16:41:05 / irstelpur7

Fótboltafjör á laugardag / Iðkendur vs Foreldrar.

Fótboltafjör verður haldið í Seljaskóla laugardaginn 10. desember næstkomandi. Við hvetjum alla til að mæta. Hver aldurshópur í yngriflokkum kemur á þeim tímum sem eru auglýstir hér í fylgiskjali. Klikkið á fótboltafjör og þá sjáið þið dagskránna.

Allir iðkendur eiga að taka pabba og mömmu með. Iðkendur flokkana ætla að spila fótbolta við foreldra. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru alltaf velkomnir og auðvitað amma og afi. 

Viljum bara sjá sem flesta. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.12.2011 11:38:15 / irstelpur7

ÆFING FELLUR NIÐUR SUNNUDAGINN 4. des

Góðan dag

Ég vil bara láta ykkur vita af því að æfingin sem á að vera í Seljaskóla á morgun sunnudaginn 4. des klukkan 11 fellur niður vegna körfuboltamóts.

Endilega láta það berast :)

Eigiði góða helgi

Kveðja,
Bjarni


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.11.2011 19:12:53 / irstelpur7

Vídeókvöld

Miðvikudaginn 30.nóvember ætla stelpurnar að hafa vídeókvöld! Fjörið verður heima hjá Gyðu, Jöklaseli 15 beint eftir æfingu og stendur til kl.20.  Stefnan er að panta pizzu og horfa á einhverja skemmtilega mynd, hver veit nema að það verði jólamynd!  

Hver og ein þarf að koma með 500 krónur!

Hlökkum til að sjá sem flestar:p

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.11.2011 11:31:30 / irstelpur7

Vinamót í Seljaskóla sunnudaginn 27. nóvember !!

Hæhæ

Við ætlum að vera með smá vinamót þar sem KR og Víkingur koma í heimsókn.
Við munum byrja um klukkan 13:00 og fínt að vera mættar korter í eitt.

Endilega staðfestið þið  þátttöku ykkar stúlku á sunnudaginn

kv,
Bjarni




» 12 hafa sagt sína skoðun

21.11.2011 02:26:46 / irstelpur7

Beiðni frá meistaraflokksráði karla.

Kæru foreldar/forráðamenn.. Samkvæmt beiðni frá meistraflokksráði karla þá báðu þeir okkur hjá Barna og unglingaráði að auglýsa eftir því hvort þið vitið um eða eigið íbúð til leigu til og með 10. desember. Og síðan aftur frá 6. janúar 2012 og til loka keppnistímabilsins fyrir Jamie McCunnie spilandi aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Halla formanni meistaraflokksráðs karla með vefpósti á halli@studioh.is eða hringja í síma 770-1500.

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2011 08:29:04 / irstelpur7

Fylkir kemur í heimsókn

Hæhæ

Vildi bara láta vita af því að Fylkis-stelpur koma í heimsókna á sunnudaginn á æfingatímanum okkar ( 11 - 12 í Seljaskóla ) og spila við okkur vinaleiki.

Endilega staðfestið hverjar ætla að koma og vera með, það vantaði líka einhverjar á æfingu í gær svo viljið þið vera svo væn að láta þetta berast.

kveðja,
Bjarni


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.10.2011 12:46:19 / irstelpur7

Grindavíkurmótið og sunnudagur

Hæhæ

Ég vil byrja á því að þakka fyrir þetta Grindavíkurmót, þetta var svaka stuð og stelpurnar að standa sig rosalega vel :)

Eins og ég tók fram á miðanum og í bloggfærslunni, þá verður engin æfing á morgun, sunnudag.

kveðja,
Bjarni Víðir


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2011 00:42:44 / irstelpur7

Skemmtikvöld fyrir foreldra. Allir hvattir til að mæta!

Kæru foreldrar og velunnarar knattspyrnudeildar ÍR !! Skemmtikvöld knattspyrnudeildarinnar verður haldið í ÍR heimilinu föstudagskvöldið 4. nóvember og hefst fjörið klukkan 20:00 og stendur yfir fram eftir nóttu – síðast var MIKIÐ fjör – þetta kvöld verður ekki síðra!! Léttar veitingar verða til sölu. Happdrætti með frábærum vinningum, meðal annars frá: Fiskbúð Hólmgeirs, Tapas barnum, Þín verslun, Bakarameistaranum og margir fleiri flottir vinningar. Posi á staðnum Enginn aðgangseyrir Síðast en ekki síst þá ætlar þú ætlar að mæta ásamt öllum hinum. Látið þennan viðburð ekki fram hjá ykkur fara. FÖSTUDAGURINN 4. NÓVEMBER KLUKKAN 20:00 Kveðja Nefndin. MUNIÐ EFTIR AÐ LESA NÆSTU FÆRSLU.. ATH Mót...

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2011 07:56:12 / irstelpur7

Grindavíkurmótið laugardaginn 29. október

Komiði sæl
Ég hef skráð 2 lið til leiks á Grindavíkurmótið sem fram fer næstu helgi.
Endilega að vera dugleg að skrá ykkar stelpu til leiks.

Sjá tilkynningu fyrir neðan.

Grindavíkurmót laugardaginn 29. október

Ég hef skráð 2 lið á Grindavíkur-mótið sem fram fer næstkomandi laugardag 29. október í Grindavík.
Það kostar 1000 krónur á hvern iðkanda að taka þátt í mótinu.
Ég þarf að vita það sem allra fyrst hverjar ætla með á mótið svo endilega að senda mér póst á bjarnip@ms.is eða í síma 898-5906

Nánari tímasetning kemur sem allra fyrst.
Engin æfing á sunnudeginum!


Þetta var að koma frá mótshaldaranum

,,Við byrjum kl.10 og spilum til kl. 12 ca. Laugardaginn 29.okt.

Best er að liðin komi klædd en annars er búningaaðstaða rétt hjá.

Þjálfari sér um að rukka stelpurnar og Petra Rós tekur á mót greiðslu.

Keppt er á tveimur völlum og er a-lið á öðrum velli en b- lið á hinum.

Kveðja Garðar"


Kv, Bjarni Víðir


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.10.2011 15:01:46 / irstelpur7

FORELDRAFUNDUR 7. flokks kvenna mánudaginn 24. október.

Foreldrafundur hjá 7.flokki kvenna verður haldin í Leiknisheimilinu kl 19:00 - 20:30 mánudaginn 24. október 2011. Á fundinum verður farið yfir starfsemi flokksins í heild sinni á komandi æfinga og keppnistímabili. Óskum eftir einu foreldri/forráðamanni frá hverjum iðkanda. Með kveðju Knattspyrnudeild.

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.10.2011 23:30:05 / irstelpur7

Æfingar að HEFJAST..

Kæru foreldar/forráðamenn iðkenda hjá knattspyrnudeild ÍR.



Mánudaginn 3. október næstkomandi munu æfingar hefjast hjá knattspyrnudeild ÍR. Við höfum loks náð að manna allar þjálfarastöður og erum nú í þessum töluðum orðum að setja á æfingartíma hjá 3. og 4. flokki kvenna. Allir aðrir flokkar voru komnir með æfingatíma og voru þeir auglýstir strax um leið og þeir voru klárir. Tveir nýir þjálfarar taka til starfa hjá knattspyrnudeildinni en þeir verða Bjarni Víðir Pálmason og Brynjar Óli Guðmundsson. Bjarni Víðir mun þjálfa 3. og 7. flokk kvenna en Brynjar Óli tekur við þjálfun 4. flokks.



Nokkrar breytingar verða á þjálfarateymi deildarinnar þetta árið en við erum sannfærð um að þær breytingar eigi eftir að koma félaginu og iðkendum til góða. Allir þjálfarar uppfylla skilyrði U.E.F.A og KSÍ um menntun þjálfara og því teljum við okkur bjóða uppá vel menntaða þjálfara og metnaðarfullt starf líkt og síðustu ár. Eins og áður hefur komið fram þá mun samstarf ÍR og Leiknis í kvennaflokkum hefjast formlega á mánudag en félögin tvö eru sannfærð um að það muni einungis efla kvennastarf félagana. Til þess að þetta verkefni takist þá biðjum við foreldra og forráðamenn að aðstoða okkur við margvísleg foreldrastörf í flokkunum og halda vel utan um starfið í samstarfi við þjálfara deildarinnar. Við erum viss um að fjöldi iðkenda í kvennaflokkunum á eftir að aukast og öll umgjörð í kringum kvennaknattspyrnu eigi eftir að vaxa og dafna á komandi árum. Þar með munum við eignast fleiri leiknari ÍR-stelpur í komandi framtíð og eldri flokkar líkt og 3. og 4. flokkur þurfa ekki að strögla við að ná í lið eins og staðreyndin hefur verið síðustu ár hjá báðum félögum. Nánari upplýsingar um samstarfið verður rætt á foreldrafundum flokkana í enda október.



Uppskeruhátíð yngri flokka var haldin laugardaginn 17. september en þar var öllum iðkendum afhent liðsmynd til eignar. Einhverjir iðkendur misstu af hátíðinni og þeir sem fengu ekki myndina geta fengið hana hjá Dóra eftir helgi. Einnig er hægt að óska eftir að fá myndina senda á vefpósti ef einhverjr vilja prenta þær út í betri gæðum heima. Vinsamlegast sendið þá vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com

Hér er hægt að sjá liðsmyndir af öllum flokkum: http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/MYNDASAFN/



SKRÁNING IÐKANDA FYRIR NÝTT ÆFINGATÍMABIL – ATH. MJÖG MIKILVÆGT AÐ KLÁRA SEM FYRST.

Félagið er að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og því verða allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu æfingagjalda. Skráning fer ekki í gegnum þjálfara. Hér er slóðin inn á skráningarvefinn https://ir.felog.is og í meðfylgjandi pdf skjali eru leiðbeiningar (smellið HÉR til að nálgast skjalið). Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef greiða þarf með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl.10:00-16:00. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða vilja greiða með öðrum hætti, bendum við á skrifstofu á 2.hæð ÍR heimilis að Skógarseli.



Þjálfarar flokkana verða eftirfarandi og allar upplýsingar um hvern flokk eru settar inn á bloggsíður flokkana. Upplýsingar um þjálfara og æfingar er hægt að sjá á http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/Yngriflokkar/



KARLA FLOKKAR.

3.flokkur karla – www.3flokkurir.blogcentral.is

Eiður Ottó Bjarnason og Engilbert Friðfinnson.

4. flokkur karla – www.4.flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Óli Halldór Sigurjónsson.

5. flokkur karla – www.5flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Heimir Berg Halldórsson.

6. flokkur karla – www.6flokkurir.blogcentral.is

Óli Halldór Sigurjónsson, Halldór Hrannar Halldórsson.

7. flokkur karla – www.7flokkurir.blogcentral.is

Árni Guðmundsson, Jóhann Ingi Hjaltasson og Daníel Þór Steinsson.

8.flokkur karla og kvenna – www.8flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Ivana Anna Nicolic.

Aðrir sem munu koma að æfingum 8., 7. og 6. flokks karla

Heimir Berg Halldórsson, Ísleifur Gissurarsson, Reynir Haraldsson og Jón Ágúst Engilbertsson.



KVENNAFLOKKAR

3. flokkur kvenna - www.irstelpur3.blogcentral.is

Bjarni Víðir Pálmason.

4. flokkur kvenna - www.irstelpur4.blogcentral.is

Brynjar Óli Guðmundsson.

5.flokkur kvenna - www.irstelpur5.blogcentral.is

Bryndís Jóhannesdóttir.

6.flokkur kvenna - www.irstelpur6.blogcentral.is

Tanja Nicolic og Ívana Anna Nicolic.

7. flokkur kvenna - www.irstelpur7.blogcentral.is

Bjarni Víðir Pálmasson.

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2011 21:13:14 / irstelpur7

Uppskeruhátíð

SVO EKKERT FARI Á MILLI MÁLA ÞÁ VERÐUR UPPSKERUHÁTÍÐ YNGRI FLOKKA HALDIN Á MORGUN LAUGARDAGINN 17. SEPTEMBER KL 14:30 í SELJASKÓLA.

ATH eldri keppnistreyjur verða til sölu á 1000kr og allur hagnaður af þeim rennur til reksturs barna og unglingaráðs Íþróttafélags Reykjavíkur.

ALLIR AÐ MÆTA.

SJÁUMST ÞAR


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 59419
Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leikmenn flokksins 2011